Já ég er bara til skammar.
Lofaði bloggi en stóð ekki við það, afsakið?
En já mínir
síðustu dagar eru búnir að vera mjööög fínir 
Á fimmtudagin
horfðum við Aron á síðustu tvo þættina af Heroes og steinsofnuðum
svo. Eða allavega ég ;$ hehe. Svo á föstudagin var bara rotnað
allan dagin .. svo um 6 fór ég og Aron í ljós og svo skutlaði hann
mér,Berglindi og Írisi í 10-11 og við versluðum fyrir stelpukvöldið
okkar. Höfðum smá tilbreytingu í þetta skiptið. Keyptum okkur
jarðaber,epli,vínber,epladjús en samt svona smá nammi. Svo fór ég
og Berglind heim til hennar og biðum eftir að Íris kláraði að éta
og í sturtu. Svo þegar hún kom og allir voru farnir uppí bústað
byrjuðum við að skera niður ávextina og gera allt flott og svona.
Bræddum súkkulaðið til að dífa jarðaberunum oní og svona flottheit.
Spjölluðum saman og átum. Allir ávextirnir kláruðust eiginlega og
allt nammið varð eftir. Hahah .. sem er bara stór atburður í lífi
okkar þar sem við erum svo miklir nammigrísar ^^, svo spiluðum við
smá og fórum svo bara snemma heim því við vorum orðnar svo
þreyttar.
Á laugardagin
fór ég frekar snemma heim. Þurfti að klára einhver hefti í sambandi
við bílprófið og svona. Svo um 6 komu Helgi,Aron og Linda að ná í
mig á nýja bílnum. Brunuðum í Reykjavík á Smáralind á Pizza Hut að
borða. Hitti einmitt Berglindi mína þar. ^^, Svo aðeins seinna komu
Svenni og Ragnheiður að borða með okkur. Svo þegar við vorum búin
að borða fórum við í bíó á Night at the museum í lúxus! Shit hvað
það er fokk nice að vera í lúxus. Hefði getað steinrotast þarna en
myndin var svo ýkt skemmtileg og fyndin að ég týmdi því ekki að
fara sofa. Þið verðið að sjá þessa mynd. Hún er ofur fyndin
Svo
eftir bíóið fórum við í keiluhöllina og það var búið að kveikja á
diskóljósunum og svona rosa gaman. Seinna komu svo Sveinbjörg &
Haddi og Þórdís & Hörður en þau voru reyndar á annarri braut
Tókum tvo leiki og ég skeit í mig
haha. Svo voru einhverjir
blindfullir og ógeðslegir pólverjar við hliðina á okkur! Ýkt vond
lykt af þeim og svona. En já svo fórum við bara heim eftir keiluna
að sofa.
Í dag hitti ég
ökukennarann minn og við spjölluðum smá. Svo í dag er ég bara búin
að liggja á netinu að taka svona ökupróf. Er að fá smá ógeð. Kann
liggur við allar spurningarnar og svörin utan að, hehe. Svo í kvöld
er ég að fara að læra undir sögupróf sem ég held að ég sé að fara í
á morgun, er samt ekki viss. ;$
En ég nenni ekki
meir. Bæææ 

nýjar myndir !! ;D